Ísland! farsældafrón og hagsælda hrímhvíta móðir! |
Hvar er þín fornaldarfrægð, frelsið og manndáðin best? |
Allt er í heiminum hverfult og stund þíns fegursta frama |
lýsir sem leiftur um nótt, langt fram á horfinni öld. |
Landið var fagurt og frítt og fannhvítir jöklanna tindar, |
himinninn heiður og blár, hafið var skínandi bjart. |
Þá komu feðurnir frægu og frjálsræðishetjurnar góðu |
austan um hyldýpishaf, hingað í sælunnar reit. |
Reistu sér byggðir og bú í blómguðu dalanna skauti; |
ukust að íþrótt og frægð, undu svo glaðir við sitt. |
Hátt á eldhrauni upp, þar sem enn þá Öxará rennur |
ofan í Almannagjá, alþingið feðranna stóð. |
Þar stóð hann Þorgeir á þingi er við trúnni var tekið af lýði. |
Þar komu Gissur og Geir, Gunnar og Héðinn og Njáll. |
Þá riðu hetjur um héröð og skrautbúin skip fyrir landi |
flutu með fríðasta lið, færandi varninginn heim. |
Það er svo bágt að standa' í stað, og mönnunum munar |
annaðhvurt aftur á bak ellegar nokkuð á leið. |
Hvað er þá orðið okkart starf í sex hundruð sumur? |
Höfum við gengið til góðs götuna fram eftir veg? |
Landið er fagurt og frítt og fannhvítir jöklanna tindar, |
himinninn heiður og blár, hafið er skínandi bjart. |
En á eldhrauni upp, þar sem enn þá Öxará rennur |
ofan í Almannagjá, alþing er horfið á braut. |
Nú er hún Snorrabúð stekkur og lyngið á lögbergi helga |
blánar af berjum hvurt ár, börnum og hröfnum að leik. |
Ó, þér unglingafjöld og Íslands fullorðnu synir! |
Svona er feðranna frægð fallin í gleymsku og dá! |