1. |
Skáld er eg ei, en huldukonan kallar |
og kveða biður hyggjuþungan beim, |
mun eg því sitja meðan degi hallar |
og mæddur smali fénu kemur heim, |
þar sem að háan hamar fossinn skekur |
og hulduþjóð til næturiðju vekur. |
2. |
Þrumi' eg á bergi, þýtur yfir hjalla |
þokan að hylja mig og kaldan foss, |
nú skal úr hlíðum hárra Tinnufjalla, |
svo huldumeyjar þægan vinni koss, |
óbrotinn söngur yfir dalinn líða |
eins og úr holti spóaröddin þýða. |
3. |
Þú sem að byggir hamrabýlin háu, |
hjartanu mínu alla daga kær, |
sólfagra mey! djúpt undir bergi bláu, |
bústu að sitja vini þínum nær; |
döggsvalur úði laugar lokkinn bleika, |
ljós er af himni, næturmyndir reika. |
4. |
Hvurs er að dyljast? harma sinna þungu, |
hlægja þeir öld, er ræður þeim ei bót; |
hvurs er að minnast? hins er hvurri tungu |
- huganum í svo festa megi rót - |
ætlanda væri eftir þeim að ræða |
sem orka mætti veikan lýð að fræða. |
5. |
Að fræða! hvur mun hirða hér um fræði? |
heimskinginn gjörir sig að vanaþræl, |
gleymd eru lýðnum landsins fornu kvæði, |
leirburðarstagl og holtaþokuvæl |
fyllir nú breiða byggð með aumlegt þvaður, |
bragðdaufa rímu þylur vesæll maður. |
6. |
Háðungarorð sem eyrun Huldu særa |
ei skulu spilla ljóði voru meir; |
sendið þér annan sanninn heim að færa |
söngvurum yðar, Njörður! Þór! og Freyr! |
og hvur sá ás sem ata þeir í kvæði |
eirðinni gleymi og hefni sín í bræði. |
7. |
Sólfagra mey! eg sé - nú leit minn andi |
þann seglið vatt í byrnum undan Skor |
og aldrei síðan aftur bar að landi - |
Eggert! ó hyggstu þá að leita vor? |
Marblæju votri varpar sér af herðum |
vandlætishetjan sterkum búinn gerðum. |
8. |
Hvað er í heimi, Hulda!? líf og andi, |
hugsanir drottins sálum fjær og nær, |
þar sem að bárur brjóta hval á sandi, |
í brekku þar sem fjallaljósið grær; |
þar sem að háleit hugmynd leið sér brýtur, |
hann vissi það er andi vor nú lítur. |
9. |
Ó, Eggert! þú varst ættarblóminn mesti, |
og ættarjarðar þinnar heill og ljós; |
blessaða stund! er fót hann aftur festi |
á frjóvri grund við breiðan sævarós. |
Sólfagra mey! hann svipast um með tárum, |
saltdrifin hetja, stiginn upp af bárum. |
10. |
Hví er hinn sterki úr hafi bláu genginn |
á hauður sem í næturfaðmi þreyr, |
veit ég að þegar værðin góða' er fengin, |
vinirnir gleyma' að birtast framar meir; |
ó, hve hann hefir eftir þráð að líta |
ástarland sitt með tignarfaldinn hvíta. |
11. |
Tárperlur bjartar titra þér í augum, |
tindra þær gegnum fagurt lokkasafn, |
sólfagra mey! því sjónar þinnar baugum |
séður er aldrei kappi þessum jafn. |
Þú elskar, Hulda! Eggert foldarblóma, |
ættjarðar minnar stoð, og frænda sóma. |
12. |
Ó, Eggert! hvursu er þinn gangur fagur! |
útivist þín er vorðin löng og hörð; |
kær er mér, faðir! komu þinnar dagur; |
hann kyssir, Hulda! þína fósturjörð; |
sólfagra mey! hann svipast um með tárum, |
saltdrifin hetja, stiginn upp af bárum. |
13. |
Þú elskar hann, þess ann eg honum glaður, |
ástin er rík, og þú ert hennar dís; |
hér vil eg sitja, hér er okkar staður, |
ó, Hulda! þar til sól úr ægi rís. |
Hallaðu lokkahöfði bjarta þínu, |
mín Hulda kær! að vinarbrjósti mínu. |
14. |
Hann svipast um, nú sefur allt í landi, |
svæft hefir móðir börnin stór og smá, |
fífil í haga, hrafn á klettabandi, |
hraustan á dúni, veikan fjölum á; |
hann svipast um í svölum næturvindi |
um sund og völl að háum fjallatindi. |
15. |
Hallaðu lokkahöfði bjarta þínu |
að hjarta mér sem nú er glatt og traust, |
hallaðu þér nú hægt að brjósti mínu; |
hann hefir ekki starfað notalaust! |
seint og að vonum svo fær góður njóta |
sín og þess alls er vann hann oss til bóta. |
16. |
Hann líður yfir ljósan jarðargróða, |
litfögur blóm úr værum næturblund |
smálíta upp að gleðja skáldið góða, |
gleymir hann öðru' og skoðar þau um stund; |
nú hittir vinur vin á grænu engi. |
"Velkominn, Eggert! dvelstu með oss lengi." |
17. |
Eggert: |
"Smávinir fagrir, foldarskart, |
fífill í haga, rauð og blá |
brekkusóley! vér mættum margt |
muna hvurt öðru' að segja frá; |
prýði þér lengi landið það |
sem lifandi guð hefir fundið stað |
ástarsælan, því ástin hans |
alls staðar fyllir þarfir manns. |
18. |
Vissi ég áður voruð þér, |
vallarstjörnur um breiða grund, |
fegurstu leiðarljósin mér, |
lék eg að yður marga stund; |
nú hef eg sjóinn séð um hríð |
og sílalætin smá og tíð, |
munurinn raunar enginn er |
því allt um lífið vitni ber. |
19. |
Faðir og vinur alls sem er! |
annastu þennan græna reit; |
blessaðu, faðir! blómin hér, |
blessaðu þau í hvurri sveit. |
Vesalings sóley! sérðu mig, |
sofðu nú vært og byrgðu þig; |
hægur er dúr á daggarnótt, |
dreymi þig ljósið, sofðu rótt. |
20. |
Smávinir fagrir, foldarskart, |
finn eg yður öll í haganum enn; |
veitt hefir Fróni mikið og margt |
miskunnar faðir, en blindir menn |
meta það aldrei eins og ber, |
unna því lítt sem fagurt er; |
telja sér lítinn yndisarð |
að annast blómgaðan jurtagarð." |
21. |
Hulda! hví grípa hendur þínar ljósu |
um hendur mér og hví svo viknar þú? |
veit eg þú elur eyrar fagra rósu, |
alsett er rauðum blómum Huldubú; |
Eggert er þér um ekki neitt að kenna, |
annast hefurðu fjallareitinn þenna. |
22. |
Sjáðu! enn lengra svífur fram um völlu |
svásúðleg mynd úr ungum blómareit, |
sterkur og frjáls og fríður enn að öllu |
Eggert að skoða gengur byggða sveit; |
hann fer að sjá, hve lífi nú á láði |
lýðurinn uni, sá er mest hann þráði. |
23. |
Brosir við honum bærinn heillagóði |
í brekkukorni, hreinn og grænn og smár; |
þar hefir búið frændi hans með fljóði |
í flokki ljúfra barna mörg um ár; |
þar hefir sveitasælan guðs í friði |
og sóminn aukist glöðu bæjarliði. |
24. |
Þar hefir gjörst að fullum áhrínsorðum |
allt sem hinn mikli bóndavinur kvað |
um dalalíf í búnaðsbálki forðum, |
um bóndalíf, sem fegurst verður það. |
Sólfagra mey! nú svífur heim að ranni |
sæbúinn líkur ungum ferðamanni. |
25. |
Sólfagra mey! nú seilist yfir tinda |
úr svölum austurstraumum roði skær, |
nú líður yfir láð úr höllu vinda |
léttur og hreinn og þýður morgunblær; |
svo var mér, Hulda! návist þín á nóttu |
sem nú er ljósið jörð á votri óttu. |
26. |
Vertu nú sæl! þótt sjónum mínum falin |
sértu, ég alla daga minnist þín; |
vertu nú sæl! því dagur fyllir dalinn, |
dunandi fossinn kallar þig til sín; |
hann breiðir fram af bergi hvítan skrúða, |
bústaður þinn er svölum drifinn úða. |
27. |
Vertu nú sæl! því sólin hálsa gyllir |
og sjónir mínar hugarmyndin flýr; |
ó, Hulda kær! er fjöll og dali fyllir |
fjölbreyttu smíði, hvar sem lífið býr |
og dauðinn, sem að svo þig löngum kallar |
sá er þig aldrei leit um stundir allar. |
28. |
Smali: |
(fer að fé og kveður) |
"Það var hann Eggert Ólafsson, |
ungur og frár og viskusnjall, |
stóð hann á hauðri studdur von, |
stráunum skýldi vetrarfall; |
meðan að sól úr heiði hló, |
hjúkraði laukum, eyddi snjó, |
kvað hann um fold og fagra mey |
fagnaðarljóð er gleymast ei. |
29. |
Kvað hann um blóma hindarhjal |
og hreiðurbúa lætin kvik, |
vorglaða hjörð í vænum dal |
og vatnareyðar sporðablik; |
þó kvað hann mest um bóndabæ |
er blessun eflir sí og æ, |
af því að hjónin eru þar |
öðrum og sér til glaðværðar. |
30. |
Það var hann Eggert Ólafsson, |
allir lofa þann snilldarmann, |
Ísland hefir ei eignast son, |
öflgari stoð né betri' en hann; |
þegar hann sigldi sjóinn á |
söknuður vætti marga brá; |
nú er hann kominn á lífsins láð |
og lifir þar sæll fyrir drottins náð." |