[Ađalvalmynd] [Ljóđ] [Sögur] [Ćviskrá] [Dagbćkur] [Bréf] [Náttúruvísindi]

Gunnarshólmi

Skein yfir landi sól á sumarvegi
og silfurbláan Eyjafjallatind
gullrauđum loga glćsti seint á degi.
Viđ austur gnćfir sú hin mikla mynd
hátt yfir sveit, og höfđi björtu svalar
í himinblámans fagurtćru lind.
Beljandi foss viđ hamrabúann hjalar
á hengiflugi undir jökulrótum
ţar sem ađ gulliđ geyma Frosti og Fjalar.
En hinum megin föstum standa fótum
blásvörtum feldi búin Tindafjöll
og grćnu belti gyrđ á dalamótum;
međ hjálminn skyggnda, hvítri líkan mjöll,
horfa ţau yfir heiđavötnin bláu
sem falla niđur fagran Rangárvöll;
ţar sem ađ una byggđarbýlin smáu,
dreifđ yfir blómguđ tún og grćnar grundir.
Viđ norđur rísa Heklutindar háu.
Svell er á gnípu, eldur geisar undir,
í ógnadjúpi, hörđum vafin dróma,
Skelfing og Dauđi dvelja langar stundir.
En spegilskyggnd í háu lofti ljóma
hrafntinnuţökin yfir svörtum sal.
Ţađan má líta sćlan sveitarblóma;
ţví Markarfljót í fögrum skógardal
dunar á eyrum, breiđa ţekur bakka
fullgróinn akur, fegurst engjaval
ţađan af breiđir hátt í hlíđarslakka
glitađa blćju, gróna blómum smám.
Klógulir ernir yfir veiđi hlakka;
ţví fiskar vaka ţar í öllum ám.
Blikar í laufi birkiţrastasveimur
og skógar glymja, skreyttir reynitrjám.
Ţá er til ferđar fákum snúiđ tveimur
úr rausnargarđi hćstum undir Hlíđ,
ţangađ sem heyrist öldufallaeimur;
ţví hafgang ţann ei hefta veđur blíđ
sem voldug reisir Rán á Eyjasandi,
ţar sem hún heyir heimsins langa stríđ.
Um trausta strengi liggur fyrir landi
borđfögur skeiđ međ bundin segl viđ rá;
skínandi trjóna gín mót sjávargrandi.
Ţar eiga tignir tveir ađ flytjast á
brćđur af fögrum fósturjarđarströndum
og langa stund ei litiđ aftur fá,
fjarlćgum ala aldur sinn í löndum,
útlagar verđa vinaraugum fjćr;
svo hafa forlög fćrt ţeim dóm ađ höndum.
Nú er á brautu borinn vigur skćr
frá Hlíđarenda hám; ţví Gunnar ríđur,
atgeirnum beitta búinn - honum nćr
dreyrrauđum hesti hleypir gumi fríđur
og bláu saxi gyrđur yfir grund;
ţar mátti kenna Kolskegg allur lýđur.
Svo fara báđir brćđur enn um stund;
skeiđfráir jóar hverfa fram ađ fljóti,
Kolskeggur starir út á Eyjasund.
En Gunnar horfir hlíđarbrekku móti,
hrćđist ţá ekki frćgđarhetjan góđa
óvinafjöld, ţó hörđum dauđa hóti.
"Sá eg ei fyrr svo fagran jarđargróđa,
fénađur dreifir sér um grćna haga,
viđ bleikan akur rósin blikar rjóđa.
Hér vil eg una ćvi minnar daga
alla sem guđ mér sendir. Farđu vel,
bróđir og vinur!" - Svo er Gunnars saga.
Ţví Gunnar vildi heldur bíđa hel
en horfinn vera fósturjarđarströndum.
Grimmlegir fjendur, flárri studdir vél,
fjötruđu góđan dreng í heljarböndum.
Hugljúfa samt eg sögu Gunnars tel,
ţar sem eg undrast enn á köldum söndum
lágan ađ sigra ógnabylgju ólma
algrćnu skrauti prýddan Gunnarshólma.
Ţar sem ađ áđur akrar huldu völl
ólgandi Ţverá veltur yfir sanda;
sólrođin líta enn hin öldnu fjöll
árstrauminn harđa fögrum dali granda;
flúinn er dvergur, dáin hamratröll,
dauft er í sveitum, hnipin ţjóđ í vanda;
en lágum hlífir hulinn verndarkraftur
hólmanum, ţar sem Gunnar sneri aftur.

Skýringar Hljóđupptaka


[Ađalvalmynd] [Ljóđ] [Sögur] [Ćviskrá] [Dagbćkur] [Bréf] [Náttúruvísindi]