Ástkæra, ylhýra málið |
og allri rödd fegra! |
blíð sem að barni kvað móðir |
á brjósti svanhvítu; |
móðurmálið mitt góða, |
hið mjúka og ríka, |
orð áttu enn eins og forðum |
mér yndið að veita. |
Veistu það, Ásta! að ástar |
þig elur nú sólin? |
veistu að heimsaugað hreina |
og helgasta stjarnan |
skín þér í andlit og innar |
albjört í hjarta |
vekur þér orð sem þér verða |
vel kunn á munni? |
Veistu að lífið mitt ljúfa |
þér liggur á vörum? |
fastbundin eru þar ástar |
orðin blessuðu. |
"Losa þú, smámey! úr lási" |
lítinn bandingja; |
sannlega sá leysir hina |
og sælu mér færir. |