Stóð eg úti' í tunglsljósi, stóð eg úti' við skóg, |
stórir komu skarar, af álfum var þar nóg; |
blésu þeir á sönglúðra og bar þá að mér fljótt |
og bjöllurnar gullu á heiðskírri nótt. |
Hleyptu þeir á fannhvítum hestum yfir grund, |
hornin jóa gullroðnu blika við lund; |
eins og þegar álftir af ísa grárri spöng |
fljúga austur heiði með fjaðraþyt og söng. |
Heilsaði hún mér drottningin og hló að mér um leið, |
hló að mér og hleypti hestinum á skeið. |
Var það út af ástinni ungu sem eg ber? |
eða var það feigðin sem kallar að mér? |