Eilífur snjór í augu mín |
út og suður og vestur skín, |
samur og samur inn og austur, |
einstaklingur! vertu nú hraustur. |
Dauðinn er hreinn og hvítur er snjór, |
hjartavörðurinn gengur rór |
og stendur sig á blæju breiðri, |
býr þar nú undir jörð í heiðri. |
Víst er þér, móðir! annt um oss; |
aumingja jörð með þungan kross |
ber sig það allt í ljósi lita, |
lífið og dauðann, kulda' og hita. |